Jæja, það er komið að því, þarf víst að setja nokkrar línur
hingað inn fyrir aðdáendur mína.
Uu..hvar á ég að byrja? Sindri Viðars á afmæli á
föstudaginn. Hann ætlar að "halda partý" í Vaglaskógi, og það
verður örugglega mikið stuð, allir þangað! Grill og læti! Ég
geri ráð fyrir því að við Anna kíkjum þangað aðeins, aldrei að
vita!
Gömlu eru að fara suður á morgun og koma ekki heim fyrr en á
sunnudaginn. Þetta þýðir mjög líklega að kallinn þarf að læra
á þvottavélina, uppþvottavélina, eldavélina og þetta stöff.
En ég ætti að geta reddað mér út úr þessu með lítilli hjálp frá
skyndibitastöðum bæjarins, þannig að kannski þarf ég ekkert að læra
á eldavélina eftir allt.
Við Anna vorum að horfa á nýju teiknimyndina þarna, Madagascar,
á sunnudaginn. Myndin var sótt á netinu, og var tekin upp á
videocameru....allt í lagi með það, maður er vanur því. Anna
var að horfa á myndina í annað skipti, og þegar myndin er u.þ.b.
hálfnuð þá stendur maður upp í bíó-inu og fer fyrir skjáinn.
Þá heyrðist í Önnu: "Sko...ég skil ekkert þennan punkt í
myndinni!!", og hneykslunarsvipurinn gerði líka
allt. Hún hélt semsagt að þetta væri partur af
myndinni. Þú ert æðisleg elskan...
Annars er þetta góð mynd sko...mæli alveg með henni. Þetta er
samt engin Sin City, þó að sum atriðin hafi verið að vefjast fyrir
sumum....*hóst*
Svo að lokum hef ég valið lag ársins, það er B.Y.O.B. með System
Of A Down. Það er endalaust gott, eins og reyndar allur
diskurinn, klassi! Kaupið hann...öll!
Farinn....veit ekki hvenær þið megið eiga von á myndunum mínum,
ég nenni ekki að setja þær inn.
HÞA